3 matarlímsblöð
3 egg, hvítur og egg aðskilin
75 g flórsykur
250 ml rjómi
250 ml þeyttur rjómi til
skreytingar
3 lífrænt ræktaðar sítrónur, hýði af þremur og safi úr
tveimur.
Aðferð
- Maður byrjar á að taka 3 stk matarlímsblöð. Leggja í bleyti í kalt vatn í skál. Maður byrjar á að taka fjögur matarlímsblöð.
- Rjóminn þeyttur í hrærivél. Geymdur í sér skál.
- Eggjahvítur stífþeyttar í hrærivel og geymdar í sérskál.
- Sítrónurnar þvegnar og svo rifnar miðlungsfínt.
- Eggjarauður, flórsykur og rifinn sítrónubörkur þeytt saman í hrærivél.
- Sítrónusafi úr tveimur sítrónum sett í lítinn pott. Matarlímsblöðin tekin úr vatnsbaðinu, vatnir kreist úr þeim og þau sett út í sítrónusafann. Hitað við vægan hita og hrært í þar til matarlímið er uppleyst. Takið af hitanum.
- Hella sítrónuleginum í lítilli bunu út í eggjarauðuhræruna og þeytta á meðan. Athugið að vökvinn sé ekki heitur, undir 30 gráðum.
- Nú er þeyttum rjóma blandað varlega saman við og svo þeyttum eggjahvítum.
- Frómasinn kældur í minnst 2 klst áður en hann er borinn fram.
Í uppskriftinni stendur: ,,Maður byrjar á að taka 3 stk matarlímsblöð. Leggja í bleyti í kalt vatn í skál. Maður byrjar á að taka fjögur matarlímsblöð.´´
ReplyDeleteHvort eiga þetta að vera 3 stk matarlímsblöð eða fjögur matarlímsblöð???